2026 - 2027 | Mánuður á opnu
Loksins eru dagsettu mánaðarinnskotin okkar mætt, hönnuð fyrir þá sem vilja skýra yfirsýn og stílhreint skipulag. Þú getur valið milli ársins 2026, 2027 eða beggja ára, þannig að innskotin passi fullkomlega við þínar þarfir og framtíðaráætlanir.
Hvert mánaðarblað er lagt út yfir tvær síður og býður upp á rúmt pláss til að skrá fundi, verkefni, markmið og mikilvægar dagsetningar. Hrein, minimalistic hönnunin gerir skipulagið þitt skýrt fullkomið fyrir daglegt skipulag, vinnulíf eða persónulegar áætlanir.
Upplýsingar:
-
Hægt að velja: 2026, 2027 eða 2026 & 2027
-
Mánuður á opnu (2 síður per mánuð)
-
Prentað og gatað í vinnustofu okkar á Íslandi
-
A5 stærð
-
120 gsm hágæða silkimjúkur, bjartur pappír
Athugaðu að þar sem vörurnar eru handunnar geta komið fram örsmá frávik í prentun, götun eða stærð milli lota. Þessi frávik hafa þó engin áhrif á notkun eða samhæfni vörunnar.
Þér gæti líkað